Skoðanir sjálfstæðismanna
04. febrúar 2010

Borðleggjandi úrskurður?

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra tilkynnti á mánudag um þá ákvörðun sína að synja staðfestingar skipulagsbreytingum sem snúa að virkjunum í neðri Þjórsá með þeim rökum að þátttaka Landsvirkjunar í kostnaði sveitarfélaga við skipulagsvinnu hafi stangast á við skipulags- og byggingarlög. Ekki nóg með það, í samtali við Fréttablaðið á þriðjudag segir ráðherrann „…að í raun hafi úrskurðurinn verið borðleggjandi“. Það er einmitt það.

Mín spurning er þá þessi: Ef úrskurðurinn var svona borðleggjandi, ef henni sem ráðherra skipulagsmála var ekki stætt á öðru en að úrskurða á þennan hátt, af hverju í ósköpunum þurfti hún að hugsa sig um í heilt ár til að komast að þessari niðurstöðu? Þessari borðleggjandi niðurstöðu.

Eigum við ekki bara að segja hlutina eins og þeir eru? Ráðherrann er andvíg virkjunum í neðri Þjórsá, þess vegna finnur hann þessa átyllu til að synja skipulaginu. Það er það eina sem er borðleggjandi í þessu máli.

Eftir Ragnheiði Elínu Árnadóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi


Eldri greinar
Allar greinar
Sjálfstæðisflokkurinn | Háaleitisbraut 1 | 105 Reykjavk | 515 1700 | xd@xd.is