Sameinuð stöndum vér
Allt frá því frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave kom fyrst inn í þingið í sumar höfum við Sjálfstæðismenn haldið því fram að samningarnir sem ríkisstjórnin gerði séu ekki ásættanlegir og að leita beri samninga að nýju. Af þeim sökum fluttu þingmenn Sjálfstæðisflokksins frávísunartillögu sem fól í sér að málinu yrði vísað að nýju til ríkisstjórnarinnar. Sú tillaga var felld á Alþingi þann 30. desember sl. Þá flutti Pétur H. Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins þá tillögu að málið færi í þjóðaratkvæðagreiðslu og þar sem frávísunartillagan hafði þá þegar verið felld samþykkti ég þá tillögu ásamt öllum þingmönnum stjórnarandstöðunar og nokkrum þingmönnum Vinstri grænna. Tillagan var felld og frumvarpið um ríkisábyrgð vegna Icesave var samþykkt sem lög frá Alþingi með atkvæðum þingmanna ríkisstjórnarflokkana. Að kvöldi 30. desember sl. var því málinu lokið og baráttan fyrir viðunandi lausn Icesavemálsins töpuð að því er mér virtist.
Ákvörðun forseta Íslands um að undirrita ekki lögin um ríkisábyrgðina og vísa málinu til þjóðarinnar opnaði málið allt saman upp á nýtt. Augljóst er að málstaður okkar Íslendinga á mun meiri hljómgrunn á erlendum vettvangi nú en haustið 2008 enda gerólíkar aðstæður þá og nú. Undirbúningur þjóðaratkvæðagreiðslu er hafinn en miklu máli skiptir hvernig við ætlum að nota tímann fram að atkvæðagreiðslunni.
Ég tel mikilvægt að þau tækifæri sem felast í hinni nýju stöðu verði nýtt. Mörg þung orð hafa verið látin falla í þeim umræðum sem fram hafa farið í Icesavemálinu á vettvangi stjórnmálanna en við sem störfum á þeim vettvangi verðum að hafa þann pólitíska þroska til að bera að geta farið yfir málið að nýju. Samstaða er sterkasta vopnið í þeirri baráttu sem framundan er og ég ber þá von í brjósti að okkur beri gæfa til að beita því vopni þjóðinni allri til heilla.
Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í SuðurkjördæmiEldri greinar
- Össur og gleymdu milljarðarnir
- Um banka, samkeppni og fjölmiðla
- Ekki meiri „Truflun“ takk !
- Sterkt samfélag
- Skiljanlegar fjarvistir frá byggðaumræðunni
- Þrennt sem Alþingi þarf að rannsaka núna!
- Hverjir eiga bankana, Steingrímur?
- Bréf formanns vegna skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis
- Fjölmiðlafrumvarpið og ofstýring
- Fjölmiðlafrumvarpið og blaðamenn






