Stjórnmálaskólinn

Um Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins

Bakgrunnur Stjórnmálaskólans
Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins var stofnaður 15. febrúar 1938 og verður því 70 ára á þessu ári. Helsti hvatamaður að stofnun hans var Gunnar Thoroddsen, þá sérstakur erindreki Sjálfstæðisflokksins. Stjórnmálaskólinn var starfræktur alveg fram til ársins 1954 og voru eitt til tvö námskeið þá haldin á hverju ári. Í skólanum voru fluttir fyrirlestrar um þjóðmál og komu nemendur víðs vegar að af landinu. Í upphafi fengu landsbyggðarnemendur gistingu hjá dyggum flokksmönnum meðan á námskeiði stóð. Eftir 1954 varð hlé á skólahaldi en Stjórnmálaskólinn var síðan endurreistur árið 1973 eftir 19 ára hlé og hefur starfað óslitið síðan. Við endurreisn hans höfðu þeir Sigurður Hafstein, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Friðrik Sophusson veg og vanda af starfsemi hans. Lauslega talið má ætla að um 3.500 manns hafi verið þátttakendur á námskeiðum Stjórnmálaskólans frá upphafi og getur engin stjórnmálahreyfing önnur á Íslandi státað af hliðstæðri starfsemi, hvorki fyrr né síðar.

Skipulag
Segja má að Stjórnmálaskólinn hafi verið fastur liður í starfsemi flokksins um árabil og notið mikilla vinsælda. Skólinn er mjög sveigjanlegur og getur starfsemi hans tekið á sig ýmsar myndar. Hann er ýmist tveggja, þriggja eða fjögurra vikna skóli, kvöld-, helgar- eða dagskóli um sérstök málefni. Einnig er boðið upp á námskeið þar sem eftir því er óskað, hvar sem er á landinu, fyrir almenning, frambjóðendur og aðra flokksmenn.

Starfsemi
Á hefðbundnum 3-4 vikna námskeiðum Stjórnmálaskólans eru 20 til 25 þátttakendur í senn. Þar flytja ýmsir þjóðkunnir menn, ráðherrar, alþingismenn, aðrir kjörnir fulltrúar flokksins og sérfræðingar á ýmsum sviðum erindi. Þátttakendum gefst kostur á þjálfun í ræðumennsku og félagsstörfum, á því að koma fram í sjónvarpi og skrifa greinar í blöð. Ennfremur eru flutt erindi um stjórnskipun Íslands, sjálfstæðisstefnuna, sögu og starfshætti íslenskra stjórnmálaflokka, sveitarstjórnarmál, efnahagsmál, atvinnulíf, utanríkis- og öryggismál, menningarmál, umhverfismál og sjávarútvegsmál svo eitthvað sé nefnt. Flest er þetta efni að finna í Handbók Sjálfstæðisflokksins sem er uppfærð eftir landsfundi og kosningar. Handbókin hefur verið notuð í skólanum við góðar undirtektir þátttakenda en í henni er auk þess að finna ýmsan annan fróðleik um stjórnmál.

Almennt
Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins er tilvalinn vettvangur fyrir þá sem hafa áhuga á að starfa með flokknum og aðra þá sem áhuga hafa á þjóðmálum og félagsmálum, bæta við þekkingu sína og kynnast nýjum og ferskum hugmyndum.

Sjálfstæðisflokkurinn | Háaleitisbraut 1 | 105 Reykjavk | 515 1700 | xd@xd.is