Landsfundur
Efni tengt 37. landsfundi 2007

Ályktun um iðnaðarmál

Á undanförnum árum hafa stjórnvöld lækkað skatta á heimili og fyrirtæki umtalsvert.  Innleitt hefur verið frelsi í fjármálaviðskiptum á milli Íslands og annarra landa.  Staðið hefur verið fyrir einkavæðingu ríkisfyrirtækja sem leyst hefur úr læðingi gífurlega orku og kraft í íslensku atvinnulífi sem teygt hefur anga sína erlendis. Þetta hefur leitt til þess að Ísland er orðið góður kostur til þess að stunda viðskipti og kemur vel út í samanburði við önnur lönd þegar litið er til samkeppnishæfni atvinnulífsins, frelsi og gegnsæi í viðskiptaháttum svo og heilbrigs og óspillt efnahags- og viðskiptaumhverfi.  En mikilvægt er að vera vel á verði gagnvart ímynd landsins og tryggja samkeppnishæfni okkar til framtíðar. 

Kjarninn í Sjálfstæðisstefnunni er trúin á frelsi einstaklingsins og jöfn tækifæri allra til að þroska og njóta hæfileika sinna. Sjálfstæðisflokkurinn telur að svigrúm og athafnafrelsi fólks og fyrirtækja verði best tryggt með lágmarksafskiptum hins opinbera sem fyrst og fremst eigi að stuðla að góðum starfsskilyrðum fyrirtækja og öryggi þegnanna.

Efnahagsmál
Góð starfsskilyrði þarf til vaxtar og viðgangs alls atvinnulífs og jöfnuður þarf að ríkja í starfsskilyrðum milli atvinnugreina bæði í skattalegu og lagalegu tilliti. Tryggja þarf að vextir komist í eðlilegt horf, gengissveiflur verði í lágmarki og verðbólga hjaðni. Tryggja þarf áfram stöðugleika í efnahagsmálum.  

Nauðsynlegt er að ljúka rammaáætlun um eðlilega virkjunarkosti. Þær stóriðjur sem risið hafa á síðustu árum hafa og munu skila miklu til þjóðfélagsins.  Huga þarf að tækifærum í frekari úrvinnsluiðnaði.  Nauðsynlegt er að tryggja fjölbreytileika íslensks atvinnulífs sem á að fá fullt frelsi til að þróast án ríkisafskipta. 

Skattar
Á undanförnum 15 árum hafa stór skref verið stigin í þá átt að lækka skatta á fyrirtæki og einfalda skattkerfið.  Nauðsynlegt er að gera enn betur og losna við þann fortíðarvanda sem skapar skekkju í starfsumhverfi iðnfyrirtækja s.s. vörugjöld af ýmsu tagi.
Ísland hefur komist í fremstu röð þegar horft er til samanburðar milli landa í skattamálum fyrirtækja og mikilvægt er að viðhalda þeirri stöðu. Vinna ber að enn meiri lækkun skatta bæði á einstaklinga og fyrirtæki á næstu árum enda sýnir reynslan að lægri skatthlutföll leiða til þess að skattstofninn hefur stækkað frá ári til árs og umtalsvert meiri tekjur skila sér til ríkisins.
Nauðsynlegt er að breyta virðisaukaskattskerfinu til að það hindri ekki að opinberar stofnanir og fjármála- og tryggingafyrirtæki sjái sér hag í að úthýsa ákveðnum verkefnum. Það mundi ýta undir nýsköpun og þróun í fjölda þekkingarfyrirtækja, en í dag eru t.d. um 400 stöðugildi í upplýsingatækni á vegum ríkisstofnana.

Nýsköpun, rannsóknir og þróun
Mikilvægt er að stjórnvöld séu meðvituð um öflugt nýsköpunarstarf og tryggt sé ákjósanlegt starfsumhverfi til nýsköpunar, rannsóknar og þróunar. Gott menntakerfi er grunnurinn að öflugu atvinnulífi og undirstaða nýsköpunar og tækniþróunar.  Færa þarf rannsóknir og þróunarverkefni frá opinberum stofnunum til einkaaðila. Íslenskt hugvit er útflutningsgrein framtíðarinnar og á síðustu árum hefur byggst upp fjöldi þekkingarfyrirtækja sem eru íslensku efnahagslífi mjög mikilvæg. Skynsamleg nýting náttúruauðlinda hefur fært okkur mikla reynslu og þekkingu sem er eftirsóknaverð og dýrmæt víða úti í heimi, s.s á sviði orku og jarðvarmanýtingar. Einkavæðing bankanna hefur sýnt okkur þann kraft sem leysist úr læðingi við það að einkaaðilar taki við rekstri. Nýsköpun og þróunarstarf þessara fyrirtækja hefur skilað þeim góðum árangri bæði hér heima og erlendis. Því ber að huga að enn frekari einkavæðingu á öðrum sviðum s.s. á sviði  heilbrigðis-, mennta- og orkumála.

Umhverfismál
Mikil vitundarvakning hefur átt sér stað í umhverfismálum á síðustu árum sem er fagnaðarefni.  Hlutverk ríkisins er að skilgreina og veita lagalegan ramma um nýtingu og vernd náttúrunnar. Tryggja að lágmarkskröfur um mengunarvernd séu skilgreindar og stuðla að því að fyrirtæki leggi sitt af mörkum til að draga úr mengun t.d. með mengunarkvótum og lagareglum.  Þeir sem menga skulu jafnframt greiða kostnaðinn af menguninni.  Hrein náttúra og andrúmsloft eru ómetanlegar auðlindir.  Leitast skal við að lágmarka sjónræna mengun í umhverfinu.

Alþjóðleg samskipti og markaðsaðgangur
Utanríkisviðskipti eru undirstaða efnahagslífsins og íslensk iðnfyrirtæki eru orðin alþjóðleg.  Ísland með sinn litla heimamarkað þarf því að treysta á aðgang að erlendum mörkuðum og frelsi í utanríkisviðskiptum. Tryggja þarf íslenskum fyrirtækjum sem víðastan markaðsaðgang með fríverslunarsamningum og auðvelda þeim að laða til sín sérhæfða starfsmenn.  Draga þarf úr hindrunum gagnvart því að erlendir sérfræðingar komi hér til starfa og að íslenskir starfsmenn fari til starfa erlendis.  Atvinnuþátttaka erlendra ríkisborgara hefur aukist mjög hér á landi.  Þó að flestir komi til skemmri dvalar er mikilvægt að þeir njóti íslenskra starfskjara. Tryggja þarf í samvinnu við atvinnurekendur að tekið sé vel á móti fólki sem sest hér að og því gert kleift að aðlagast íslensku samfélagi.  Það er best gert með því að bjóða öfluga íslenskukennslu  og aðgengilega samfélagsfræðslu. 

Menntun og þjálfun
Ísland er og á að vera samfélag í fremstu röð sem byggir á mannauði og menningu með alþjóðlegu yfirbragði.  Í nýlegu áliti Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um mat á samkeppnisstöðu þjóða, er lögð megináhersla á mikilvægi menntunar og árangur á sviði rannsókna og nýsköpunar sem drifkrafta hagvaxtar.  Vinna þarf að öflugri uppbyggingu allra skólastiga og leggja sérstaka áherslu á raun- og tæknigreinar.  Leggja þarf rækt við frumkvöðlahugsun og samkeppnisanda í skólakerfinu.  Efla þarf rannsóknir og rannsóknarnám á háskólastigi og hvetja til aukins samstarfs atvinnulífs, háskóla og rannsóknarstofnana. 
Nauðsynlegt er að fjölga nemum í iðn- og verknámi og auka kynningu námsins á grunnskóla- og framhaldsskólastigi t.d. með vinnutengdu starfsnámi.. 
Nauðsynlegt er að endurskipuleggja vinnustaðanám og kostnaðarskiptingu þess og horfa til Þýskalands og Norðurlanda í því sambandi. Til að ná ofangreindum markmiðum er rétt að horfa til þess að rannsóknir og menntun á sviði atvinnulífs sé í tengslum og nábýli við fyrirtæki á viðkomandi sviði.

Lagaumhverfi
Lagaumhverfið þarf að vera einfalt og gegnsætt og nauðsynlegt er að einfalda regluverk sem byggst hefur upp í kringum hinar ýmsu leyfisveitingar opinbera aðila til handa fyrirtækjum.  Gera þarf eftirlitshlutverk hagkvæmara og skilvirkara og stefna sérstaklega að því að úthýsa slíkum verkefnum.  Auka þarf eftirlitsvitund almennings.
Byggingariðnaður hefur vaxið hratt á síðustu árum, mikil spenna hefur verið á markaðnum og sjaldan eins mikið verið byggt.   Setja þarf skýrar reglur til þess að tryggja öryggi og gæði mannvirkja.  Eftirlit þarf að vera markvisst og faglegt sem og úrræði til að tryggja að farið sé að tilsögn eftirlitsaðila.

Löngu er orðið tímabært að stofna eitt atvinnuvegaráðuneyti.  Það mun auka möguleika á að sameina stofnanir ráðuneyta og auka hagkvæmni þeirra.

Til baka
Sjálfstæðisflokkurinn | Háaleitisbraut 1 | 105 Reykjavk | 515 1700 | xd@xd.is