Fréttir og tilkynningar
21. júní 2010

SUS fagnar 80 ára afmæli sínu

Þann 27. júní næstkomandi fagnar Samband ungra sjálfstæðismanna 80 ára afmæli sínu. Afmælisárið mun einkennast af sannkallaðri afmælisdagskrá og hefst hún á landsfundi Sjálfstæðisflokksins nú um næstkomandi helgi.

Hátíðarkvöldverður á landsfundi verður tileinkaður afmæli SUS en veislan fer fram laugardagskvöldið 26. júní á Gullhömrum í Grafarholti og hefst hún með fordrykk kl. 20. Veislan er opin öllum og er ekki eingöngu fyrir landsfundarfulltrúa.

Veislustjóri er Ari Eldjárn og að kvöldverði loknum leikur hljómsveitin Tríkot fyrir dansi.

Matseðill
Forréttur: humarsúpa með ristuðum humarhölum og nýbökuðu brauði.
Aðalréttur: grilluð nautalund með hunangsgljáðri steinseljurót og foie grass sósu.
Eftirréttur: volg súkkulaðikaka með sólberjasósu og vanilluís.

Miðaverð er 6.800 krónur.

Miðasala hefst á morgun, þriðjudag, í Valhöll og verður hægt að kaupa miða milli kl. 11 og 15 alla virka daga fram að landsfundi. Tryggðu þér miða í tæka tíð en miðaframboð er takmarkað og hefur jafnan verið uppselt á hátíðarkvöldverðinn! Einnig er hægt að ganga frá miðakaupum með millifærslu með því að hafa samband við Hödd Vilhjálmsdóttur, hodd@xd.is.

Kær kveðja,
Ólafur Nielsen
formaður SUS

Skoðanir Sjálfstæðismanna
15. júní 2010

Þorskstofninn fer stækkandi

Mat Hafrannsóknastofnunarinnar á ástandi þorskstofnsins sem nú liggur fyrir, var jákvæðara en flestir þorðu að vona. Bráðabirgðaniðurstöður stofnunarinnar frá því í apríl sl. voru vísbending um að ekki væri mikilla tíðinda að vænta um uppbyggingu stofnsins. Þeim mun gleðilegra er að lesa það nú út úr skýrslu stofnunarinnar nú að þorskstofninn, okkar mikilvægasti nytjastofn, sé í ótvíræðum vexti.

Sjálfstæðisflokkurinn | Háaleitisbraut 1 | 105 Reykjavk | 515 1700 | xd@xd.is