Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði af sér varaformennsku
„Ég hef eftir mikla umhugsun komist að þeirri niðurstöðu að það sé best fyrir Sjálfstæðisflokkinn, eins og sakir standa, að ég láti af embætti varaformanns og ég fari í tímabundið leyfi sem þingmaður, m.a. með tilliti til þeirrar þingnefndar sem er að fjalla um rannsóknarskýrsluna,“ sagði Þorgerður Katrín á flokksráðs-, formanna- og frambjóðendafundi Sjálfstæðisflokksins sem fram fer í Stapa í Reykjanesbæ í dag.
„Það er sárt að kveðja varaformannsembættið, en ég get ekki horft fram hjá minni ábyrgð, minni samvisku og mínum trúverðugleika. Ég vil ekki að persóna mín í embætti varaformanns skyggi á það endurreisnarstarf sem vinna þarf innan flokksins, eða þær gríðarlegu mikilvægu kosningar sem framundan eru núna á vormánuðum,“ segir Þorgerður Katrín.
Þorskstofninn fer stækkandi
Mat Hafrannsóknastofnunarinnar á ástandi þorskstofnsins sem nú liggur fyrir, var jákvæðara en flestir þorðu að vona. Bráðabirgðaniðurstöður stofnunarinnar frá því í apríl sl. voru vísbending um að ekki væri mikilla tíðinda að vænta um uppbyggingu stofnsins. Þeim mun gleðilegra er að lesa það nú út úr skýrslu stofnunarinnar nú að þorskstofninn, okkar mikilvægasti nytjastofn, sé í ótvíræðum vexti.






