Fréttir og tilkynningar
10. mars 2010

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ samþykktur

Listi Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ fyrir bæjarstjórnakosningarnar í vor var samþykktur í gærkvöldi, en fulltrúaráð boðaði til fundar þar sem tillaga kjörnefndar var borin upp.

Tillaga kjörnefndar var samþykkt samhljóða með lófataki en sjálfstæðismenn hafa nýlokið við glæsilegt prófkjör, þar sem þátttaka var mjög góð.

Árni Sigfússon, sem fékk yfirburðakosningu í prófkjörinu til að halda áfram að leiða lista sjálfstæðismanna, fagnaði nýjum og sterkum framboðslista um leið og hann þakkaði fráfarandi bæjarfulltrúum fyrir gott samstarf á liðnum árum. Sagði hann mikilvægt fyrir Reykjanesbæ að það fólk sem gæfi kost á sér hefði vilja til að ná árangri. Hvort sem menn væru í meirihluta eða minnihluta, ættu allir að vera samstíga um að koma okkur yfir endamarkið í þeim atvinnuverkefnum sem við höfum unnið að undanfarin ár.

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ er eftirfarandi:

1. Árni Sigfússon, bæjarstjóri
2. Gunnar Þórarinsson, viðskiptafræðingur
3. Böðvar Jónsson, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi
4. Magnea Guðmundsdóttir, kynningarstjóri
5. Einar Magnússon, skipstjóri og útgerðarmaður
6. Baldur Guðmundsson, markaðsstjóri
7. Björk Þorsteinsdóttir, skrifstofumaður
8. Ingigerður Sæmundsdóttir, grunnskólakennari
9. Jóhann Snorri Sigurbergsson, viðskiptafræðingur
10. Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður
11. Gunnar Ellert Geirsson, verkfræðingur
12. Rúnar V. Arnarsson, bankamaður
13. Björg Hafsteinsdóttir, sjúkraþjálfari
14. Björgvin Árnason, skrifstofumaður
15. Ellen Agata Jónsdóttir, listnám í hönnun
16. Þorbjörg Garðarsdóttir, framhaldsskólakennari
17. Dröfn Rafnsdóttir, kennsluráðgjafi
18. Guðbjörg Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur
19. Erlingur Bjarnason, vaktstjóri
20. Konráð A. Lúðvíksson, yfirlæknir
21. Þorseinn Erlingsson, bæjarfulltrúi
22. Björk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar

Samþykkt af fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ, þriðjudaginn 9. mars 2010.

Skoðanir Sjálfstæðismanna
15. júní 2010

Þorskstofninn fer stækkandi

Mat Hafrannsóknastofnunarinnar á ástandi þorskstofnsins sem nú liggur fyrir, var jákvæðara en flestir þorðu að vona. Bráðabirgðaniðurstöður stofnunarinnar frá því í apríl sl. voru vísbending um að ekki væri mikilla tíðinda að vænta um uppbyggingu stofnsins. Þeim mun gleðilegra er að lesa það nú út úr skýrslu stofnunarinnar nú að þorskstofninn, okkar mikilvægasti nytjastofn, sé í ótvíræðum vexti.

Sjálfstæðisflokkurinn | Háaleitisbraut 1 | 105 Reykjavk | 515 1700 | xd@xd.is