Fréttir og tilkynningar
06. febrúar 2010

Haraldur bæjarstjóri sigurvegari prófkjörs í Mosfellsbæ

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara í vor, fór fram í dag.  Á kjörskrá var 1.341 og 826 manns kusu sem þýðir 61% kjörsókn. 15 manns gáfu kost á sér. 22 atkvæði voru auð eða ógild.

Röð efstu 7 var sem hér segir.
Haraldur Sverrisson með 671 atkvæði í 1. sæti (83,5%)
Herdís Sigurjónsdóttir með 364 atkvæði í 1. – 2. sæti  (45,3%)
Bryndís Haraldsdóttir með 340 atkvæði í 1.- 3. sæti (42,3%)
Hafsteinn Pálsson með 324 atkvæði í 1. – 4. sæti (40,3%)
Kolbrún G. Þorsteinsdóttir með 343 atkvæði í 1.-5. sæti (42,7%)
Rúnar B. Guðlaugsson með 323 atkvæði í 1.-6.  sæti (40,2%)
Theodór Kristjánsson með 370 atkvæði í 1. – 7. sæti (46,0%)
Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ.

Skoðanir Sjálfstæðismanna
15. júní 2010

Þorskstofninn fer stækkandi

Mat Hafrannsóknastofnunarinnar á ástandi þorskstofnsins sem nú liggur fyrir, var jákvæðara en flestir þorðu að vona. Bráðabirgðaniðurstöður stofnunarinnar frá því í apríl sl. voru vísbending um að ekki væri mikilla tíðinda að vænta um uppbyggingu stofnsins. Þeim mun gleðilegra er að lesa það nú út úr skýrslu stofnunarinnar nú að þorskstofninn, okkar mikilvægasti nytjastofn, sé í ótvíræðum vexti.

Sjálfstæðisflokkurinn | Háaleitisbraut 1 | 105 Reykjavk | 515 1700 | xd@xd.is