Niðurstöður úr prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Grindavík
Á kjörskrá voru 387 og greiddu 256 manns atkvæði. Kjörsókn var mjög góð, eða 66%.
Auðir seðlar og ógildir voru 6.
Niðurstaða prófkjörsins var þessi:
1. Guðmundur Pálsson með 138 atkvæði í 1. sæti
2. Vilhjálmur Árnason með 112 atkvæði í 1.-2. sæti
3. Magnús Már Jakbsson með 115 atkvæði í 1.-3. sæti
4. Jóna Rut Jónsdóttir með 104 atkvæði í 1.-4. sæti
5. Guðbjörg Eyjólfsdóttir með 106 atkvæði í 1.-5. sæti
6. Svava Björk Jónsdóttir með 96 atkvæði í 1.-6. sæti
7. Kristinn Benediktsson með 117 atkvæði í 1.–7. sæti
Aðrir hlutu færri atkvæði
Þorskstofninn fer stækkandi
Mat Hafrannsóknastofnunarinnar á ástandi þorskstofnsins sem nú liggur fyrir, var jákvæðara en flestir þorðu að vona. Bráðabirgðaniðurstöður stofnunarinnar frá því í apríl sl. voru vísbending um að ekki væri mikilla tíðinda að vænta um uppbyggingu stofnsins. Þeim mun gleðilegra er að lesa það nú út úr skýrslu stofnunarinnar nú að þorskstofninn, okkar mikilvægasti nytjastofn, sé í ótvíræðum vexti.






