Fréttir og tilkynningar
06. febrúar 2010

Niðurstöður úr prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Álftanesi – frábær kjörsókn

Góð þátttaka var í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Álftanesi. Á kjörskrá voru 371 og kusu tæplega 300 manns. Kjörsókn var frábær, eða 75%.

Auðir seðlar og ógildir voru 16.

Niðurstaða prófkjörsins var þessi:

1. Snorri FInnlaugsson með 108 atkvæði í 1. sæti
2. Kristinn Guðlaugsson með 136 atkvæði í 1.-2. sæti
3. Kjartan Örn Sigurðsson með 107 atkvæði í 1.-3. sæti
4. Hjördís Jóna Gísladóttir með 148 atkvæði í 1.-4. sæti
5. Guðjón Andri Kárason með 158 atkvæði í 1.-5. sæti
6. Elías Jakob Bjarnason með 150 atkvæði í 1.-6. sæti

Aðrir hlutu færri atkvæði.

Skoðanir Sjálfstæðismanna
15. júní 2010

Þorskstofninn fer stækkandi

Mat Hafrannsóknastofnunarinnar á ástandi þorskstofnsins sem nú liggur fyrir, var jákvæðara en flestir þorðu að vona. Bráðabirgðaniðurstöður stofnunarinnar frá því í apríl sl. voru vísbending um að ekki væri mikilla tíðinda að vænta um uppbyggingu stofnsins. Þeim mun gleðilegra er að lesa það nú út úr skýrslu stofnunarinnar nú að þorskstofninn, okkar mikilvægasti nytjastofn, sé í ótvíræðum vexti.

Sjálfstæðisflokkurinn | Háaleitisbraut 1 | 105 Reykjavk | 515 1700 | xd@xd.is