Fréttir og tilkynningar
06. febrúar 2010

Mikil þátttaka í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ - tæplega 1700 kusu

Mikil þátttaka var í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ en tæplega 1700 kusu. Atkvæði greiddu 1.651. Kjörsókn var mjög góð, eða tæplega 60%.

Gild atkvæði voru 1.623. Auðir seðlar og ógildir voru 27.

Niðurstaða prófkjörsins var þessi:

1. Erling Ásgeirsson með 767 atkvæði í 1. sæti

2. Páll Hilmarsson með 797 atkvæði í 1.-2. sæti

3. Stefán Konráðsson með 769 atkvæði í 1.-3. sæti

4. Sturla Þorsteinsson með 977 atkvæði í 1.-4. sæti

5. Áslaug Hulda Jónsdóttir með 977 atkvæði í 1.-5. sæti

6. Ragný Þóra Guðjohnsen með 846 atkvæði í 1.-6. sæti

7. Sigurður Guðmundsson með 974 atkvæði í 1.-7. sæti

Aðrir hlutu færri atkvæði.

Meðfylgjadni eru heildartölur fyrir sæti 1. - 7.

Skoðanir Sjálfstæðismanna
15. júní 2010

Þorskstofninn fer stækkandi

Mat Hafrannsóknastofnunarinnar á ástandi þorskstofnsins sem nú liggur fyrir, var jákvæðara en flestir þorðu að vona. Bráðabirgðaniðurstöður stofnunarinnar frá því í apríl sl. voru vísbending um að ekki væri mikilla tíðinda að vænta um uppbyggingu stofnsins. Þeim mun gleðilegra er að lesa það nú út úr skýrslu stofnunarinnar nú að þorskstofninn, okkar mikilvægasti nytjastofn, sé í ótvíræðum vexti.

Sjálfstæðisflokkurinn | Háaleitisbraut 1 | 105 Reykjavk | 515 1700 | xd@xd.is