Fréttir og tilkynningar
05. febrúar 2010

Formaður Sjálfstæðisflokksins fundaði með efnahags- og viðskiptaráðherra Danmerkur

Formaður Sjálfstæðisflokksins Bjarni Benediktsson átti í dag, 5. febrúar, fund með Lene Espersen, viðskipta- og efnahagsráðherra og aðstoðarforsætisráðherra Danmerkur.

Á fundinum upplýsti Bjarni ráðherrann og formann danska Íhaldsflokksins um stöðu efnahagsmála á Íslandi og um hagsmuni þjóðarinnar í Icesave-málinu.  Bjarni lagði mikla áherslu á það við Espersen að mikilvægt væri fyrir Ísland að fá  stuðning Dana og ríkisstjórna annars staðar á Norðurlöndunum við áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gagnvart Íslandi, óháð Icesave-deilunni.

Bjarni Benediktsson hefur einnig upplýst Ernu Solberg , formann norska Hægriflokksins, um stöðu þessara mála.

Skoðanir Sjálfstæðismanna
15. júní 2010

Þorskstofninn fer stækkandi

Mat Hafrannsóknastofnunarinnar á ástandi þorskstofnsins sem nú liggur fyrir, var jákvæðara en flestir þorðu að vona. Bráðabirgðaniðurstöður stofnunarinnar frá því í apríl sl. voru vísbending um að ekki væri mikilla tíðinda að vænta um uppbyggingu stofnsins. Þeim mun gleðilegra er að lesa það nú út úr skýrslu stofnunarinnar nú að þorskstofninn, okkar mikilvægasti nytjastofn, sé í ótvíræðum vexti.

Sjálfstæðisflokkurinn | Háaleitisbraut 1 | 105 Reykjavk | 515 1700 | xd@xd.is