Fréttir og tilkynningar
03. febrúar 2010
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Akranesi
ormaður bæjarráðs
Ragnar Már Ragnarsson, byggingafræðingur
Snjólfur Eiríksson, garðyrkjufræðingur
Tíu frambjóðendur hafa gefið kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akranesi, sem fram fer laugardaginn 27. febrúar nk. Frambjóðendur eru eftirfarandi:
Anna María Þórðardóttir, fótaaðgerðafræðingur
Einar Brandsson, sölustjóri
Eydís Aðalbjörsdóttir, bæjarfulltrúi
Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri
Gunnar Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar
Halldór Jónsson, fjármálastjóri
Íris Bjarnadóttir, háskólanemi
Karen Jónsdóttir, formaður bæjarráðs
Ragnar Már Ragnarsson, byggingafræðingur
Snjólfur Eiríksson, garðyrkjufræðingur
Í prófkjörinu skal kjósa 6 frambjóðendur, hvorki fleiri né færri. Þátttaka í prófkjörinu er heimil öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna á Akranesi sem þar eru búsettir. Einnig er þátttaka heimil stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarrétt á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum í vor og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag á Akranesi fyrir lok prófkjörfundar.
Frá og með 16. febrúar verður hægt að kjósa utan kjörfundar í Valhöll, skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, alla virka daga milli 9 og 17. Nánari upplýsingar veitir Bergþór Ólason, formaður kjörnefndar, í síma 860-9007 eða á bergthor@loftorka.is.
Skoðanir Sjálfstæðismanna
15. júní 2010
Þorskstofninn fer stækkandi
Mat Hafrannsóknastofnunarinnar á ástandi þorskstofnsins sem nú liggur fyrir, var jákvæðara en flestir þorðu að vona. Bráðabirgðaniðurstöður stofnunarinnar frá því í apríl sl. voru vísbending um að ekki væri mikilla tíðinda að vænta um uppbyggingu stofnsins. Þeim mun gleðilegra er að lesa það nú út úr skýrslu stofnunarinnar nú að þorskstofninn, okkar mikilvægasti nytjastofn, sé í ótvíræðum vexti.






