Fréttir og tilkynningar
31. janúar 2010
Niðurstaða staðfest
Í ljósi lítils atkvæðamunar Valdimars Svavarssonar og Rósu Guðbjartsdóttur í fyrsta sæti prófkjörs sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði sem fram fór 30. janúar 2010 voru atkvæði þeirra í það sæti endurtalin. Niðurstaða endurtalningar staðfesti fyrri niðurstöðu.
Kjörstjórn
Skoðanir Sjálfstæðismanna
15. júní 2010
Þorskstofninn fer stækkandi
Mat Hafrannsóknastofnunarinnar á ástandi þorskstofnsins sem nú liggur fyrir, var jákvæðara en flestir þorðu að vona. Bráðabirgðaniðurstöður stofnunarinnar frá því í apríl sl. voru vísbending um að ekki væri mikilla tíðinda að vænta um uppbyggingu stofnsins. Þeim mun gleðilegra er að lesa það nú út úr skýrslu stofnunarinnar nú að þorskstofninn, okkar mikilvægasti nytjastofn, sé í ótvíræðum vexti.






