Athugasemdum ríkisstjórnarflokkanna við skattareiknivél Sjálfstæðisflokksins svarað
Undir hádegi sendu formenn þingflokka VG og Samfylkingar frá sér yfirlýsingu þar sem fræðsluherferð Sjálfstæðisflokksins um skattahækkanir ríkistjórnarinnar er sögð vafasöm. Í yfirlýsingunni er einnig bent á að skattbyrði í heild og af tekjuskatti sérstaklega verði á árinu 2010 lægri en hún var á valdatíma Sjálfstæðisflokksins fyrir hrun. Þá er enn hoggið í sama knérunn og því haldið fram að skattar lægri tekjuhópanna muni lækka við skattahækkunina. Það er rangt og munu öll heimili í landinu ýmist verða af lögbundnum hækkunum á persónuafslætti eða greiða hærri skatta sökum aðgerða ríkisstjórnarinnar.
Við túlkun og framsetningu tölulegra staðreynda er hægt að gefa sér ýmsar forsendur. Grunnforsendan sem Sjálfstæðismenn nota í fræðsluherferð sinni um skattahækkanir ríkistjórnarinnar eru núgildandi lög og reglur. Samkvæmt lögum á persónufrádráttur að hækka sem nemur hækkun neysluverðsvísitölu um næstu áramót. Þessi lög voru sett árið 2007. Hækkunin hefði samkvæmt lögum orðið um 3.400,- krónur um áramótin. Þá var í tengslum við kjarasamninga árið 2007 gert samkomulag um að persónufrádráttur yrði hækkaður í þrepum og að um áramótin næstu myndi hann hækka um 2.000,- kr. Stjórnarflokkarnir ætla að afnema lögbundna hækkun um áramótin en standa við þrepahækkunina. Um þetta er ekki deilt. Hins vegar er deilt um hvort skattahækkunina skuli miða við núgildandi lög eða núgildandi skattbyrði. Sjálfstæðisflokkurinn fer þá leið að fara að lögum og reglum og hafnar því að í því felist blekkingar.
Í yfirlýsingu stjórnarflokkanna er gerð tilraun til að draga úr trúverðugleika skattreiknivélarinnar sem unnin var fyrir Sjálfstæðisflokknum af fyrirtækinu Datamarket.
Í fyrsta lagi er deilt á þá framsetningu að tekjur séu miðaðar við mánaðarlaun en aukin skattbyrði sýnd á ársgrundvelli. Við slíka framsetningu er ekkert að athuga enda er hún ágætt mótvægi við tilraunir ríkisstjórnarflokkanna til að draga athyglina heildarafleiðingunum af fyrirhuguðum skattahækkunum. Reiknivélin er einmitt hugsuð til þess að almenningur í landinu geti gert sér glögga mynd af þeirri auknu skattbyrði sem aðgerðir og tillögur ríkisstjórnarinnar munu leiða af sér.
Í annan stað benda þingflokkar Vinstri grænna og Samfylkingar á að hækkun á höfuðstól skulda dreifist yfir lánstíma viðkomandi fjölskyldna. Þetta er rétt enda engin tilraun gerð til að gefa annað í skyn. Það breytir því hins vegar ekki að reiknivélin auðveldar einstaklingum og heimilunum í landinu að fá yfirsýn yfir þær auknu skuldbindingar sem skattahækkanir ríkisstjórnarinnar leggja á herðar þjóðarinnar.
Í þriðja lagi er gagnrýnt að forsendur fyrir reiknilíkani Datamarket séu ekki sýnilegar á reiknivél Sjálfstæðisflokksins. Þetta er rangt, forsendurnar er bæði á finna í reiknivélinni og í öðru kynningarefni Sjálfstæðisflokksins um skattahækkanir ríkisstjórnar Vinstri grænna og Samfylkingar.
Í fjórða lagi vilja ríkisstjórnarflokkarnir komast hjá þeirri staðreynd að fjármagnstekjuskattur hefur á valdatíma þeirra þegar hækkað úr 10% í 15% og mun enn hækka í 18% verði áform stjórnarflokkanna að veruleika. Markmið reiknivélar Sjálfstæðisflokksins er að varpa ljósi á heildaraukningu á skattbyrði þjóðarinnar sem leiða af aðgerðum ríkisstjórnarinnar og því eru fyrri skattahækkanir á hennar ábyrgð að sjálfsögu teknar með í reikninginn.
Í fimmta lagi er því haldið fram að reiknivélin geri ekki ráð fyrirr 100 þúsund króna frítekjumarki á vaxtatekjur. Þessi staðhæfing er röng og gerir reiknivél Sjálfstæðisflokksins ráð fyrir þessari forsendu.
Sjálfstæðisflokkurinn
Þorskstofninn fer stækkandi
Mat Hafrannsóknastofnunarinnar á ástandi þorskstofnsins sem nú liggur fyrir, var jákvæðara en flestir þorðu að vona. Bráðabirgðaniðurstöður stofnunarinnar frá því í apríl sl. voru vísbending um að ekki væri mikilla tíðinda að vænta um uppbyggingu stofnsins. Þeim mun gleðilegra er að lesa það nú út úr skýrslu stofnunarinnar nú að þorskstofninn, okkar mikilvægasti nytjastofn, sé í ótvíræðum vexti.






